Farfuglatónleikar Hannesarholts
::: Tónleikaröð tileinkuð íslenskum tónlistarnemendum sem nema við tónlistarskóla erlendis :::
Aðrir tónleikar Farfugla þetta árið eru tónleikar gítardúósins Gunnlaugs Björnssonar og Jiji Kim. Tónleikarnir hefjast kl. 14.00.
Leiðir Gunnlaugs og Jiji lágu saman í Yale School of Music þar sem þau útskrifuðust með mastersgráðu í tónlist síðastliðið vor. Bæði hafa þau komið víða við í listsköpun sinni, í kvikmyndagerð, myndlist og leikhúsi auk þess sem þau fást bæði við tónsmíðar. Fjölþættur bakgrunnur og víðfeðmt áhugasvið þeirra endurspeglast í viðfangsefnum dúettsins LINÜ þar sem saman renna klassísk tónlist og spuni og glænýjar tónsmíðar fyrir bæði klassíska gítara og rafmagnsgítara. Auk þess sem þau hafa starfað með listamönnum úr öðrum geirum og má þar nefna nýlegt samstarfsverkefni með myndlistarmanninum og arkitektinum Drew Busmire þar sem dúóið LINÜ frumflutti tónverk fyrir sýndarveruleikagleraugu
Á efnisskránni er tónlist úr ýmsum áttum, en m.a. þess sem verður leikið eru verk eftir Philip Glass, Arvo Pärt, Ólaf Arnalds ásamt eigin tónsmíðum dúósins og vel völdum jólalögum.
---
Opið verður í Veitingastofum Hannesarholts fyrir og á milli viðburða þar sem jólaplatti hússins verður borinn fram ásamt kaffiveitingum.