Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Jólatónleikar Mótettukórs Hallgrímskirkju - „O magnum mysterium“ - Tónleikar

$
0
0

Hinir árlegu jólatónleikar Mótettukórs Hallgrímskirkju verða einstaklega hátíðlegir í ár en yfirskrift tónleikanna er „O magnum mysterium“ eða „Hið mikla undur“. Efnisskráin endurspeglar þetta hjartnæma viðfangsefni og má þar finna hugljúfa blöndu af klassískum jólalögum eftir Adam, Eccard, o.fl., gleðilegum endurreisnarverkum eftir Victoria og Sweelinck og yndisfögrum kórverkum frá 20. öld eftir Lauridsen, Poulenc, Whitacre o.fl.

Sérstakur gestur að þessu sinni verður Elmar Gilbertsson, tenór. Elmar er einn virtasti og vinsælasti söngvari sígildrar tónlistar á Íslandi í dag og hefur hlotið margvísleg verðlaun fyrir frammistöðu sína m.a. tvisvar verið valinn söngvari ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. Nú síðast árið 2016 fyrir hlutverk sitt í Don Giovanni og einnig árið 2014 fyrir hlutverk Daða Halldórssonar í óperunni Ragnheiði og hlaut hann líka Grímuverðlaunin það árið. Hann hefur oft komið fram í Hallgrímskirkju með Mótettukórnum einkum í barokkuppfærslum, seinast í sumar við flutning á Messu í h-moll eftir J. S. Bach.

Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgel. Hörður Áskelsson stjórnar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696