Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Alþjóðlegt Orgelsumar - Tónleikar

$
0
0

Stutt lýsing: Á Alþjóðlegu orgelsumri 2017, sem nú er haldið 25. sumarið í röð koma fram afburða konsertorganistar í fremstu röð frá ýmsum löndum. Helgina 24.-25. Júní leikur Björn Steinar Sólbergsson á Klais orgel Hallgrímskirkju. Björn Steinar er einn færasti organisti landsins . Á efnisskrá hans að þessu sinni er Sónata eftir Felix Mendelssohn Bartholdy, skemmtileg umritun fyrir orgel á Víkivaka eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson og að lokum Preludía og fúga eftir J.S Bach.

Björn Steinar Sólbergsson er organisti við Hallgrímskirkju í Reykjavík og einnig skólastjóri og orgelkennari við Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Björn Steinar stundaði framhaldsnám á Ítalíu og í Frakklandi, útskrifaðist frá Conservatoire National de Region de Rueil Malmaison árið 1986 með “Prix de virtuosité”. Hann starfaði sem organisti við Akureyrarkirkju í 20 ár þar sem hann vann markvisst að uppbyggingu tónlistarstarfs við kirkjuna. Björn Steinar hefur haldið fjölda einleikstónleika hér heima, á öllum Norðurlöndunum, í Evrópu og Norður-Ameríku. Hann hefur leikið einleik með sinfóníuhljómsveitum innanlands og utan og hljóðritað geislaplötur, m.a. öll orgelverk Páls Ísólfssonar og orgelkonsert Jóns Leifs (BIS) sem hlaut einróma lof gagnrýnenda. Björn Steinar hlaut Menningarverðlaun DV 1999, Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2001 og var valinn bæjarlistamaður Akureyrar 2002. Hann hlaut Listamannalaun 1999 og 2015.Á árinu 2017 kemur Björn Steinar fram á tónleikum á Íslandi, Noregi, Danmörku og Þýskalandi.


EFNISSKRÁ:

24. júní kl. 12.00: 
Björn Steinar Sólbergsson; Hallgrímskirkju í Reykjavík
Efnisskrá

Felix Mendelssohn Bartholdy  1809-1847

Sónata VI í d-moll, op. 65

Choral mit variationen
Allegro molto
Fuga
Finale: Andante


Sveinbjörn Sveinbjörnsson  1847-1927   Víkivaki
Umritun/Transcription: Björn Steinar Sólbergsson


Johann Sebastian Bach 1685–1750

Praeludium et fuga í D-dúr, BWV 532



Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


INUMAN QUOTES


Re:Mutton Pies (lleechef)