Óskalög Óskars Einarssonar
50 ára afmælistónleikar 28. maí í Lindakirkju.
Óskar Einarsson píanóleikari og kórstjóri heldur upp á 50 ára afmælið sitt með stæl og býður til Gospelveislu.
Fram koma Gospelkór Fíladelfíu og Kór Lindakirkju sem Óskar stjórnar
ásamt stórri hljómsveit sem skipuð er okkar færustu hljóðfæraleikurum. Fjöldi
einsöngvara kemur fram með kórunum og má þar nefna Eyþór Inga Gunnlaugsson, Pál
Rósinkranz og Jóhönnu Guðrúnu.
Nokkur laganna sem flutt verða eru samin af Óskari sjálfum, önnur
eru lög sem eru í uppáhaldi og hafa haft áhrif á feril hans.
Allur ágóði af tónleikunum rennur í hjálparstarf ABC og því slá menn tvær flugur í einu höggi, njóta stórkostlegra tónleika og styrkja frábært starf ABC barnahjálpar.
Tónleikarnir verða kl. 20:00 í Lindakirkju Kópavogi.
Miðaverð kr. 3.000