Kaffibarsins, heldur þann 25. maí til Lundúna. Af því tilefni höfum við ákveðið að slá til léttrar söngveislu til að afla fjár fyrir ferðina. Kórinn mun flytja sín helstu lög frá upphafi og stjórnandinn, Jón Svavar Jósefsson, mun slá á sína alkunnu stórgóðu strengi og fara með gamanmál. Afslöppuð stemming og almenn gleði munu einkenna tónleikana. Bartónar eru nú komnir á sjöunda starfsár og hafa ætíð gefið meira en þeir hafa þegið, þeir gefið umtalsverðar upphæðir til góðgerðarmála og jafnframt sungið með og hitað upp fyrir heimsfræga listamenn, til að mynda Rea Garvey og Damien Rice.
↧