Þann 30. september lítur fjórða hljóðversplata Skálmaldar dagsins ljós og í framhaldinu halda þeir sexmenningar í víking útfyrir landsteina til kynningarstarfa. Með harðfylgi tókst að berja eina tónleikahelgi á Íslandi inn í dagskrána fyrir brottför og þótt ekki sé um eiginlega útgáfutónleika að ræða fær mikið af nýja efninu að hljóma í bland við hið gamla.
14. október kl. 22:00 - Græni hatturinn (miðasala hér)
15. október kl. 17:00 - Gaukurinn (allur aldur)
15. október kl. 22:00 - Gaukurinn
Með í för verður nýstofnuð hljómsveit að nafni KroniKa sem telur meðlimi úr Skálmöld, Dimmu, Sunnyside Road og Reykjavíkurdætrum.
Miðaverð í forsölu er 3.900.- en 2.000.- á dagtónleika Gauksins. Miðasala hefst 1. september.