Tríóið Hrafnaspark er Akureyringum vel kunnugt, en það var stofnað árið 2001 í kjallara á Brekkunni.
Hrafnaspark hefur frá upphafi leikið sígaunajazz í anda gítarsnillingsins Django Reinhardt og var fyrsta hljómsveit sinnar tegundar hér á landi. Þeir komu víða fram á árunum 2001-2010 og léku á hverju ári á DjangoJazz hátíðinni sem haldin var á Akureyri. Hljómplatan Hrafnaspark kom út árið 2006 og hlaut góðar viðtökur. Eftir sex ára hlé ætla drengirnir nú að koma saman aftur og halda tónleika í heimahögunum - á Græna hattinum þann 18. ágúst.
Hrafnaspark hefur oft notið liðsinnis söngkonunnar og fiðluleikarans Unnar Birnu Björnsdóttur, sem einnig mun troða upp með þeim að þessu sinni. Unnur hefur verið áberandi síðustu ár; hún lauk burtfararprófi frá FÍH árið 2011 og hefur spilað með ýmsum tónlistarmönnum jafnt á Íslandi og á erlendri grundu og má þar helst nefna Ian Anderson, forsprakka Jethro Tull. Unnur vinnur nú að sinni fyrstu plötu, sem kemur út í haust.
Á efnisskrá tónleikanna verður fjölbreytt tónlist, allt frá Edvard Grieg til Billy Joel - sígaunaslagarar og jazzstandardar í bland við íslenska músík og nýlegri popptónlist.
Fiðla og söngur: Unnur Birna Björnsdóttir
Kontrabassi: Pétur Ingólfsson
Gítar: Ólafur Haukur Árnason
Gítar: Jóhann Guðmundsson
↧
Hrafnaspark ásamt Unni Birnu - Tónleikar
↧