Hljómsveitin Á móti sól er 20 ára um þessar mundir. Því er ekki ráð nema í tíma sé tekið að staldra aðeins við og líta um öxl og jafvel axlir.
Ljúflingarnir, Heimir, Þórir, Stebbi, Sævar og Magni ætla að leika nokkur af sínum þekkari lögum og segja misspennandi sögur tengdar söngvunum á Græna Hattinum.
Magni hefur ítrekað sagt vitlausum Sunnlendingunum að Hatturinn sé besti tónleikastaður í heimi. Drængerne er ikke pissesure med det. Miklu meira en spenntir í raun.
Núna mega þeir allt, þeir eiga afmæli í ár!
↧
Á móti sól - Tónleikar
↧