Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Alþjóðlegt orgelsumar - Douglas Cleveland leikur á Klais-orgelið

$
0
0

Alþjóðlegt orgelsumar, hinir vinsælu sumartónleikar í Hallgrímskirkju, standa frá 18. júní til 21. ágúst þetta árið. Einu sinni í viku heldur kammerkórinn frábæri, Schola cantorum, tónleika í hádeginu. Þrisvar í viku má njóta þess að hlusta á hæfileikaríka organista, suma á heimsmælikvarða, leika á hið magnaða Klais-orgel kirkjunnar. Organistarnir eru bæði íslenskir og erlendir, en erlendu gestirnir þetta árið eru frá Bandaríkjunum, Svíþjóð, Hollandi, Bretlandi, Frakklandi, Lettlandi og Þýskalandi.

Bandaríski organistinn Douglas Cleveland ólst upp í borginni Olympia í Washington og lærði við Eastman School of Music og Háskólana í Indiana og Oxford. Hann öðlaðist alþjóðlega viðurkenningu árið 1994 þegar hann hlaut fyrstu verðlaun American Guild of Organists fyrir unga orgelleikara og hefur síðan þá leikið í 49 fylkjum Bandaríkjanna ásamt frægustu kirkjum og tónleikasölum í Evrópu, Ástralíu, Singapore og Japan. 

Douglas hefur auk þess átt farsælan kennsluferil, gefið út fjórar geislaplötur við lof gagnrýnenda og leikið með bæði sinfóníuhljómsveitum og snemmtónlistarhópum. Þetta er í þriðja sinn sem Dogulas heimsækir Klais-orgelið en hann mun leika spennandi blöndu af gamalli og nýrri orgeltónlist sem spannar allt frá Bach og Marchand til bandarískra samtímatónskálda. 



Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


Re:Mutton Pies (lleechef)


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Pamatay na Banat and Mga Patama Love Quotes


Tagalog Long Distance Relationship Love Quotes


BARKADA TAGALOG QUOTES


“BAHAY KUBO HUGOT”


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.