Alþjóðlegt orgelsumar, hinir vinsælu sumartónleikar í Hallgrímskirkju, standa frá 18. júní til 21. ágúst þetta árið. Einu sinni í viku heldur kammerkórinn frábæri, Schola cantorum, tónleika í hádeginu. Þrisvar í viku má njóta þess að hlusta á hæfileikaríka organista, suma á heimsmælikvarða, leika á hið magnaða Klais-orgel kirkjunnar. Organistarnir eru bæði íslenskir og erlendir, en erlendu gestirnir þetta árið eru frá Bandaríkjunum, Svíþjóð, Hollandi, Bretlandi, Frakklandi, Lettlandi og Þýskalandi.
Mattias Wager, einn þekktasti organisti Norðurlandanna, hefur gegnt starfi dómorganista við Storkyrkan í Stokkhólmi frá 2006 þar sem hann lék meðal annars við brúðkaup Viktoríu krónprinsessu og Daníels prins árið 2011. Hann nam orgelleik og kirkjutónlist við Konunglega tónlistarháskólann í Stokkhólmi og hlaut verðlaun Konunglega tónlistarháskólans fyrir lokatónleika sína árið 1992 en framhaldsnám stundaði hann í Bonn og París.
Mattias hefur unnið fjölda alþjóðlegra verðlauna fyrir leik sinn og tekið þátt í listahátíðum og haldið tónleika víða um Evrópu og í Brasilíu. Hann hefur kennt orgelleik og spuna við alla helstu tónlistarháskóla Svíþjóðar. Frá 1995 hefur Mattias Wager heimsótt Ísland reglulega og verið gestakennari við Tónskóla þjóðkirkjunnar auk þess að halda fjölda tónleika. Mattias þykir afar fær í spuna og hefur einnig skrifað tónlist fyrir leikrit sem hafa verið flutt víða um Svíþjóð. Í sumar mun hann leika blöndu franskra og skandinavískra orgelverka ásamt spuna.