Alþjóðlegt orgelsumar, hinir vinsælu sumartónleikar í Hallgrímskirkju, standa frá 18. júní til 21. ágúst þetta árið. Einu sinni í viku heldur kammerkórinn frábæri, Schola cantorum, tónleika í hádeginu. Þrisvar í viku má njóta þess að hlusta á hæfileikaríka organista, suma á heimsmælikvarða, leika á hið magnaða Klais-orgel kirkjunnar. Organistarnir eru bæði íslenskir og erlendir, en erlendu gestirnir þetta árið eru frá Bandaríkjunum, Svíþjóð, Hollandi, Bretlandi, Frakklandi, Lettlandi og Þýskalandi.
Gestur þessarar opnunarhelgar er hinn 27 ára gamli Thomas Ospital, nýráðinn í stöðu annars tveggja organista við St. Eustache-kirkjuna í París, en í þeirri kirkju er að finna stærsta pípuorgel Frakklands. Thomas er einnig nýráðinn organisti franska ríkisútvarpsins. Hann var afburðanemandi við Maurice Ravel konservatoríið í Bayonne og við Parísarkonservatoríið. Hann hefur unnið til margra verðlauna í alþjóðlegum orgelkeppnum í Saragossa, Chartres og Angres á undanförnum árum.
Thomas kemur reglulega fram á tónleikum víða um lönd sem einleikari, með kórum og hljómsveitum. Hann hefur sérstakan áhuga á spunatónlist af öllu tagi og hefur gaman af að leika undir þöglar kvikmyndir. Á tónleikum sínum í Hallgrímskirkju þessa helgi mun hann einmitt leika spuna ásamt verkum eftir Mozart, Bach, Ravel og Liszt.