Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Vök og CeaseTone - Tónleikar

Vök vakti fyrst athygli þegar hún sigraði Músíktilraunir árið 2013. Hljómsveitin spilar draumkennda, elektróníska popptónlist með indie áhrifum. Seyðandi rödd söngkonunnar Margrétar Ránar Magnúsdóttur er fyrirferðarmikil í hljómi Vakar auk þess sem fjarlægur saxófónleikur Andra Más Enokssonar spilar stóran þátt. Auk þeirra eru í hljómsveitinni þeir Ólafur Alexander Ólafsson (Gítar, Bassi) og Einar Hrafn Stefánsson (Trommur, Slagverk). Vök hefur gefið út tvær þröngskífur (EP), Tension (2013) og Circles (2015) sem innihalda þekkt lög eins og Before, Ég bíð þín og Waterfall. 

Vök hefur getið sér gott orð fyrir tilfinningaþrungna tónleika sína en þau hafa verið iðin við tónleikahald undanfarin missiri. Í janúar 2015 kom Vök fram á “showcase” tónlistarhátíðinni Eurosonic við frábærar viðtökur og spiluðu í kjölfarið á fjölda tónlistarhátíða í Evrópu síðasta sumar. Þar ber helst að nefna Hróarskelduhátíðina í Danmörku. 

Það er mikið um að vera hjá Vök þessa dagana en sveitin gaf nýlega út lagið Waiting og fylgdu þau útgáfunni eftir með sinni fyrstu tónleikaferð um Evrópu þar sem þau komu fram á 24 tónleikum í 9 löndum á rúmum mánuði. Sumarið mun Vök nýta í upptökur á sinni fyrstu breiðskífu auk þess að spila á hinum ýmsu tónlistarhátíðum í Evrópu.

Vök hefur áður komið fram á Akureyri en verður þetta í fyrsta sinn sem sveitin kemur fram á eigin vegum með tónleika í fullri lengd.

Vinsamlegast athugið

18 ára aldurstakmark er á viðburðinn.


Hér má sjá tónlistarmyndband við nýjustu smáskífu þeirra, Waiting, þar sem íslensk náttúrua spilar stórt hlutverk.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Girasoles para colorear


Gwapo Quotes : Babaero Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Patama tagalog quotes – Move On Quotes


Inggit Quotes and Kabit Quotes – Tagalog Patama Quotes


5 Uri ng Pambobola


kasama kang tumanda


RE: Mutton Pies (frankie241)


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.


EASY COME, EASY GO


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Patama Quotes – Tanga love tagalog quotes


Ligaw Quotes – Courting Quotes – Sweet Tagalog Quotes


INUMAN QUOTES


Hugot Lines 2020 Patama : ML Edition


Re:Mutton Pies (lleechef)


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Pokemon para colorear