Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

SN - Óma Íslandslög -

$
0
0
Mynd

Sinfóníuhljómsveit Norðurlandsásamt Gunnari Þórðarsyni sameina krafta sína með Tónlistarmiðstöð Austurlands og Kór Fjarðabyggðar undir stjórn Gillian Haworth á tónleikum helguðum helstu perlum íslensku poppsögunnar frá árunum 1960-1980 þar sem lög Gunnars Þórðarsonar skipa veigamikinn sess.
Hljómsveitarstjórn og útsetningar ásamt meðleik annast Daníel Þorsteinsson og Gunnar Þórðarson auk einvalaliðs norðfirskra tónlistarmanna en einsöngvarar verða úr framvarðasveit íslenskra söngvara.

Gunnar Þórðarson fæddist þann 4. janúar 1945 á Hólmavík en fluttist til Keflavíkur ásamt fjölskyldu sinni árið 1953. Hann vakti fyrst á sér athygli með Hljómum er þeir komu fram seinni hluta árs 1963. Tónlist Gunnars Þórðarsonar er þjóðkunn  og hefur fylgt mörgum á lífsleiðinni. Tónlist hans hefur markað djúp spor í íslenskri poppsögu enda spannar framlag Gunnars sem hljóðfæraleikara, lagahöfundar og útsetjara á fimmta hundrað verk á tugum hljómplatna.

Norðfirðingurinn Daníel Þorsteinsson lauk framhaldsprófi í píanóleik og kennslufræði frá Sweelinck tónlistarháskólanum í Amsterdam árið 1993. Hann hefur komið fram víða um heim og leikið tónlist af ýmsu tagi inn á fjölda hljómdiska. Daníel hefur samið og útsett tónlist fyrir leikhús, söngvara og kóra. Hann kennir við Tónlistarskólann á Akureyri, starfar sem organisti og kórstjóri í Laugalandsprestakalli í Eyjafirði og er stjórnandi Kvennakórs Akureyrar.  Daníel spilar reglulega með SN og hefur komið fram sem einleikari með hljómsveitinni.

Gillian Haworth kórstjóri er ensk að uppruna og stundaði nám við Dartington College of Arts. Að loknu BA-námi í tónlist flutti hún til Reyðarfjarðar þar sem hún er skólastjóri tónlistarskólans og blásarakennari. Gillian hefur verið leiðandi í tónlistarlífi á Austurlandi og staðið fyrir margháttuðum viðburðum á sviði tónlistar m.a. sem kórstjóri Kórs Fjarðabyggðar.

Þetta eru þriðju tónleikarnir í tónleikaröðinni „Óma Íslandslög“.  Upphafsmaður hennar var Ágúst Ármann Þorláksson (1950-2011), organisti Norðfjarðarkirkju og skólastjóri Tónskóla Neskaupstaðar en verkefnastjórn og útsetningar hafa verið í höndum Daníels Þorsteinssonar. Fyrstu tónleikarnir voru tileinkaðir Íslenskum ættjarðarlögum, þeir næstu, „Manstu gamla daga“, fylgdu í kjölfarið með eftirstríðsáratónlist eftir Svavar Benediktsson, Sigfús Halldórsson og Jón Múla og fleiri og nú er komið að þeim þriðju þar sem brot af því besta úr íslenskri popptónlistarsögu frá '60-'80 er flutt.

Þegar slíkt úrvalslið kemur saman er óhætt að lofa kröftugum og mögnuðum tónleikum


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Patama Quotes – Tanga love tagalog quotes


Ligaw Quotes – Courting Quotes – Sweet Tagalog Quotes


INUMAN QUOTES


Hugot Lines 2020 Patama : ML Edition


Re:Mutton Pies (lleechef)


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.


Pokemon para colorear


Gwapo Quotes : Babaero Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Patama tagalog quotes – Move On Quotes


Inggit Quotes and Kabit Quotes – Tagalog Patama Quotes


5 Uri ng Pambobola


kasama kang tumanda


RE: Mutton Pies (frankie241)


EASY COME, EASY GO


Girasoles para colorear