Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

SN - Veitsla -

$
0
0
Mynd

Sinfóníuhljómsveit Færeyja heimsækir Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.

Sinfóníuhljómsveit Færeyja var stofnuð 1983 og fagnar því um þessar mundir 30 ára afmæli sínu. Hljómsveitin var stofnuð í kjölfar opnunar Norræna hússins í Færeyjum þar sem eru kjöraðstæður til tónleikahalds. Þar hélt hún sína fyrstu tónleika 19. júní 1983 og hefur átt miklum vinsældum að fagna æ síðan. Hljómsveitin heldur allt að 20 tónleikum á ári og er þekkt fyrir fjölbreytt og metnaðarfullt efnisval. Aðalhljómsveitarstjóri er Bernharður Wilkinson en hann hefur lagt sitt af mörkum til að skapa Sinfóníuhljómsveit Færeyja sérstöðu og glæsileika.

Í tilefni af stórafmæli sínu heimsækir Sinfóníuhljómsveit Færeyja Norðurland. Á efnisskránni er m.a.píanókonsert í flutningi hins rússneska Pavel Rajkerus og frumflutningur á verki eftir Sunleif Rasmussen sem er meðal áhrifamesta tónlistarfólks Færeyja. Verkið er afmælisgjöf hans til Sinfóníuhljómsveitar Færeyja og fagnaðarefni að Norðlendingar og aðrir gestir fái að njóta góðs af.

Pavel Rajkerus píanóleikari stundaði nám við Rimsky-Korsakov ríkistónlistarháskólann í St. Pétursborg sem er  einn virtasti tónlistarháskóli Rússlands. Hann hefur verið sigusæll í ýmsum alþjóðlegum keppnum en hann vann t.d.  árið 2000 alþjóðlega keppni í St. Pétursborg sem efnilegasti píanóleikarinn. Rajkerus hefur átt mjög farsælan feril og komið víða fram, m.a. í  Rússlandi, Bandarikjunum og í Evrópu. Hann starfar einnig sem píanókennari í St. Pétursborg og í Kóreu en nemendur hans hafa þegar margir unnið til verðlauna innanlands og utan og þykja líklegir til frekari afreka.

Bernharður Wilkinson aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Færeyja fæddist á Englandi og á farsælan tónlistarferil að baki. Hann hófst þegar Bernharður var ungur drengur og söng í drengjakór á Englandi og kom m.a. fram í Westminister Abbey. Hann lærði síðar á flautu og starfaði lengi sem flautuleikari hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands eða þar til hann var ráðinn þar sem aðstoðarhljómsveitarstjóri. Bernharður hefur stjórnað ýmsum hljómsveitum og kórum víða um Evrópu. Hann hefur starfað sem aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Færeyja síðan árið 2005.

SN óskar Sinfóníuhljómsveit Færeyja innilega til hamingju með afmælið

Efnisskrá
Sunleif Rasmussen
Veitsla
(1961)   
Pjotr Tjækovskí Píanókonsert nr. 1
(1840-1893)
HLÉ
Edward Elgar Enigma tilbrigðin
(1857-1934)      
 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


Re:Mutton Pies (lleechef)


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Pamatay na Banat and Mga Patama Love Quotes


Tagalog Long Distance Relationship Love Quotes


BARKADA TAGALOG QUOTES


“BAHAY KUBO HUGOT”


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.