Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

SN - Suðrænir og norrænir strengjatónar -

$
0
0
Mynd

Kammertónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.

Efnisskrá tónleikanna einkennist af samspili suðrænna og norrænna tóna. Flutt verður munúðarfullt verk eftir eitt af  þekktustu gítartónskáldum 20. aldarinnar, hinn ítalska Mario Castelnuovo. Castelnuovo átti mjög farsælan feril sem kvikmyndatónskáld en hann samdi tónlist við ríflega 200 Hollywoodmyndir. Að auki verður sérlega spennandi frumflutningur á tónverki eftir hinn finnska Matta Saarinen. Matti leggur áherslu á grunntækni um leið og hann gefur sér frelsi til að fara út fyrir rammann og nálgast tónlistina með nýjum hætti í tónsmíðum sínum.

Matti Saarinen gítarleikari nam klassískan gítarleik í Svíþjóð í Tónlistarháskólanum í Malmö og við Síbelíusarakademíuna í Helsinki. Hann fór þaðan til Austurríkis og útskrifaðist frá Tón- og leiklistarháskólanum í Vín. Matti  hefur komið fram sem einleikari og hljóðfæraleikari víða í Evrópu og Íslandi með ýmsum kammerhópum sem og SN. Hann flutti hingað til lands 2006 og starfar sem tónlistarkennari við Tónlistarskólann á Akureyri.

Zsuzsanna Bitay fiðluleikari. Að loknu diplomanámi í fiðluleik frá Tónlistarakademíunni í Cluj í Transylvaniu  lék Zsuzsanna m.a. með Hljómsveit ungversku ríkisóperunnar, Ungversku útvarps- og sjónvarpshljómsveitinni og Hátíðarhljómsveitinni í Budapest. Zsuzsanna hefur búið á Íslandi frá 2007 og  leikur reglulega með SN. Hún kennir við Tónlistarskóla Dalvíkurbyggðar og Tónskóla Fjallabyggðar.

Tomasz Kolosowski fiðluleikari lauk B.A. gráðu í fiðluleik frá Tónlistarakademíunni í Gdansk árið 2009  og meistaragráðu þaðan árið 2011. Tomasz hefur starfað með Fílharmóníusveitinni í Gdansk auk ýmissa tónlistarhópa bæði hér á landi og erlendis. Hann kemur reglulega fram með SN og kennir við Tónlistarskólann á Akureyri.

Pawel Kolosowski víóluleikari lærði á fiðlu við Tónlistarskólann á Akureyri. Árið 2006 lauk hann B.A. námi frá Tónlistarakademíunni í Gdansk í Póllandi og meistaragráðu frá sama skóla 2012. Pawel hefur starfað með Fílharmóníusveit Gdansk, Sinfóníuhljómsveit Gdansk, SN auk ýmissa tónlistarhópa bæði hér á landi og í Evrópu.

Ásdís Arnardóttir lauk meistarnámi í sellóleik frá Boston University árið 1995. Áður hafði hún m.a. stundað nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og í Barcelona við Escuela Luthier d´Arts Musicals.  Ásdís starfaði við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og Suzukitónlistarskólann í Reykjavík frá 1995-2007.  Hún lék reglulega með Hljómsveit Íslensku óperunnar og var fastráðin við Sinfóníuhljómsveit Íslands 1997-2000. Auk þess hefur Ásdís alltaf lagt sig eftir að iðka kammertónlist. Ásdís starfar við tónlistarkennslu og sellóleik á Norðurlandi og er virkur þátttakandi í Barokksmiðju Hólastiftis og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.

Efnisskrá
Mario Castelnuovo-Tedesco
      Kvintett fyrir gítar og strengjakvartett, op.143
(1895-1968)
                                              1. Allegro, vivo e schietto
                                              2. Andante mesto
                                              3. Scherzo. Allegro con spirito, alla Marcia
                                              4. Finale. Allegro con fuoco
Hlé
Matti Saarinen                         Kvintett fyrir rafmagnsgítar og strengjakvartett
(1978)
 
 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


HOY PANGIT, MAGBAYAD KA!


“Tado” Jimenez Quotes Collections Online


Girasoles para colorear


Pulga para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


EASY COME, EASY GO


Mga Patama sa mga Nagmamahal the Best Tagalog love quotes for you


Top 10 Best Tagalog Friendship Quotes and Sayings | mrbolero


Re:Mutton Pies (lleechef)


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.


Pokemon para colorear


Sapos para colorear


Presence Quotes – Positive Quotes


Maganda Quotes – tagalog Quotes – Inggit Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Hugot Lines 2020 Patama : ML Edition


RE: Mutton Pies (frankie241)


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE