Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar halda tónleika í Bæjarbíó í Hafnarfirði fimmtudaginn 3. mars!
Jónas Sig og Ritvélar framtíðarinnar hlutu á dögunum þrjár tilnefningar til íslensku tónlistarverðlaunanna, fyrir lag ársins í rokk flokki, textahöfund ársins og sem flytjendur ársins. Til þess að fagna þeim árangri munu þau blása til krafmikla tónleika, eins og þeim einum er lagið, í Bæjarbíó í Hafnarfirði fimmtudaginn 3. mars kl. 21.00.
Jónas og Ritvélarnar komu síðast saman með tónleikaröð í október og seldu þá upp á alla tónleikana, því borgar sig að næla sér í miða fyrr heldur en síðar.
Nánar um tilnefningarnar:
Flytjendur ársins: Jónas Sigurðsson og Ritvélar framtíðarinnar
-Kraftmikil og þétt hljómsveit með mikla og einlæga spilagleði sem smitast auðveldlega út til áheyrenda.
Textahöfundur ársins: Jónas Sigurðsson
-Þjóðfélagsrýni sem talar við samtímann, færir okkur tilfinningar þjóðarinnar á silfurfati á einstaklega leikinn hátt.
Lag ársins (Rokk flokkur): Jónas Sigurðsson og Ritvélar framtíðarinnar – Af ávöxtunum skuluð þið þekkja þá
– Kraftmikið rokklag í bland við beitta þjóðfélagsádeilu
Hlökkum til að sjá ykkur í Bæjarbíó!