Ljótu hálfvitarnir halda uppteknum hætti og halda uppteknum Hatti.
Eins og venjulega þegar þeim dettur í hug að bruna norður yfir heiðar hertaka þeir Græna hattinn á Akureyri tvö kvöld í röð. Að þessu sinni föstudags- og laugardagskvöldin 19. og 20. febrúar. Lítið hefur farið fyrir þeim á Norðurlandi frá því að þeir hljóðrituðu plötuna Hrísey í Hrísey síðastliðið sumar, ef frá er talið karlakórsprógramm þeirra með Hreimi í Hofi í nóvember. Það er því sannarlega kominn tími á hefðbundna Hattstvennu þar sem galgopastuðullinn verður hækkaður í ellefu. Hljóðdæmi af nýju plötunni munu hljóma bæði kvöld, en tónleikarnir hefjast kl. 22.00.Vinsamlegast athugið
18 ára aldurstakmark er á viðburðinn.