
Þrefaldur Grammyverðlaunahafinn og einn mesti gítarsnillingur rokksögunnunar, Steve Vai, heldur tónleika í Silfurbergi Hörpu föstudaginn 11. október. Ekki þarf að fara mörgum orðum um hæfni snillingsins á gítar eða hvað hann hefur gert á frábærum ferli sínum. Frank Zappa, Whitesnake og sólóferillinn. Þrisvar sinnum fengið Grammyverðlaun og selt yfir 15 milljónir plötur.
Steve Vai er frábær á hljómleikum og án efa verður engin undantekning í Silfurbergi í október. Hann er að fylgja eftir nýjustu afurð sinni The Story of Light, sem hefur fengið frábæra dóma um heim allan.