Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Af fingrum fram - Jón Ólafs og gestir - Páll Óskar – Allt fyrir ástina og Jón

$
0
0
Mynd

Af fingrum fram
Fernir tónleikar á aðeins 12.000 kr.
Jón Ólafsson fær til sín gesti og laðar fram þægilega og létta stemningu eins og honum einum er lagið. Einstakir spjalltónleikar þar sem áhorfendur komast í nálægð við tónlistarmenn sem aldrei fyrr. Veldu fjóra af sjö tónleikum Af fingrum fram og tryggðu þér ánægjulegar kvöldstundir í vetur.

26. september kl. 20:30
Páll Óskar - Allt fyrir ástina og Jón

Páll Óskar vann hug og hjörtu áheyrenda á fernum tónleikum með Jóni síðastliðinn vetur.  Húmor og hispursleysi einkenndi samleik þeirra félaga og mátti heyra hlátrarsköllin upp í Hádegismóa.  Tónleikarnir verða nú endurteknir vegna fjölda áskorana og er von á góðu. Með þeim leikur Róbert Þórhallsson á bassa.

10. október kl. 20:30
Eiríkur Hauksson – Sekur í Gaggó Vest

Eiríkur Hauksson á að baki fjölbreyttan tónlistarferil. Hann hefur sungið þungarokk, kraftballöður, íslensk dægurlög að ógleymdum Eurovisionlögunum. Má þá nefni Gaggó Vest, Gleðibankann, Gull, Ástarbréf merkt X, Sekur og fleiri.  Eiríkur hefur búið í Noregi um langa hríð og hyggst Jón m.a. rannsaka hvort það hafi haft slæm áhrif á kímnigáfu hins rauðhærða stórsöngvara. Með þeim verður Friðrik Sturluson, bassaleikari.

7. nóvember kl. 20:30
Bjartmar Guðlaugsson – Súrmjólk í Salnum

Bjartmar sló í gegn á níunda áratugnum með plötum sínum Í fylgd með fullorðnum og Með vottorð í leikfimi.Í kjölfarið raulaði landinn lög eins og Súrmjólk í hádeginu, Týnda kynslóðin, Fimmtán ára á föstu og fleiri.  Hann hefur sinnt málaralistinni meðfram músíkinni síðustu ár en að undanförnu hefur hann heldur betur látið til sín taka í tónlistinni og samdi m.a. lagið Þannig týnist tíminn sem Raggi Bjarna og Lay Low fluttu svo fallega. Bjartmar er ekki vanur að liggja á skoðunum sínum og það má reikna með dúndurkvöldi!

6. febrúar kl. 20:30
Gunnar Þórðarson – Bláu augun hans

Gunnar Þórðarson hefur fyrir löngu skipað sér í röð fremstu lagahöfunda landsins. Hann hefur samið dægurlög, barnalög, kvikmyndatónlist, tónlist fyrir leikhús, messu og nú síðast Óperuna Ragnheiði sem frumflutt var í ágúst s.l. í Skálholti.  Fjölmörg laga Gunnars eru orðin klassísk og má þar nefna Fyrsti kossinn, Bláu augun þín, Þitt fyrsta bros, Við Rekjavíkurtjörn, og fleiri.  Hljómaaðdáandi númer eitt situr við flygilinn og rekur garnirnar úr tónskáldinu hógværa.

21. febrúar kl. 20:30
Stefán Hilmarsson – Ljómi hans er skínandi skær

Stefán Hilmarsson og félagar hans í Sálinni hafa verið í hópi vinsælustu tónlistarmanna þjóðarinnar allt frá því hljómsveitin var stofnuð árið 1988.  Hljómsveitin hélt upp á 25 ára afmælið sitt í nóvember við mikinn fögnuð aðdáenda.  Stefán og Jón voru saman í Sálinni á upphafsárunum og víst er að líf og fjör verður í húsinu þegar þeir taka við að rifja upp feril Stefáns í tali og tónum. Með þeim verður bassaleikarinn geðgóði, Friðrik Sturluson úr Sálinni.

6. mars kl. 20:30
Björgvin Halldórsson – Þó líði ár og öld

Björgvin Halldórsson hefur verið einn okkar fremsti söngvari frá því hann kom fram á sjónarsviðið fyrir margt löngu.  Ríkisstjórnir koma og fara, fólk flytur, skiptir um bíl og breytir lífi sínu. En Björgvin fer ekkert því þjóðin fær aldrei nóg af Bó!   Þessi magnaði listamaður heiðrar okkur með nærveru sinni enn eina ferðina og það má bóka góða kvöldstund þegar félagarnir setjast við hljóðfærin og taka lagið milli þess sem sögurnar koma í löngum bunum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696