
Contact Gonzo höggva á hvorn annan í röð af árekstrum, skellum og átökum. Í baráttu um rými, þessi öfgafulli og líkamlegi hópur frá Osaka Japan, leysir úr læðingi sérstaka leiðir í líkamlegum spuna sem er undir áhrifum frá bardagalistum til internet tískubylgja.
Með því að dreifa sér um og taka yfir opinberar byggingar, leikhús, söfn og götur um allan heim, er niðurstaðan oftast röð af áhrifaríkum stefnumótum sem leika á mörkum ofbeldis og viðkvæmni.
Fyrir Reykjavik Dance Festival 2013, munu Contact Gonzo starfa í samstarfi með hljóð og ljósa listamanninum Testuya Umeda. Contact Gonzo samanstendur af fimm meðlimum með mismunandi bakgrunn, þar á meðal Masakazu Kobayashi, Takuya Matsumi, Yu Kanai, Keigo Mikajiri og Yuya Tsukahara.
Sýningin er styrkt af The Japan Foundation