Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Jólatónleikar Mótettukórs Hallgrímskirkju - Ljós í lofti glæðist

$
0
0
Mótettukór Hallgrímskirkju hefur í rúm þrjátíu ár glatt Íslendinga á jólum og skipa jólatónleikar kórsins veglegan sess í ríkulegu tónleikahaldi í Reykjavík.  

Í ár heldur kórinn þrenna tónleika á aðventunni þar sem hinn hreini kórsöngur skreyttur orgelleik og málmblæstri verður í sviðsljósinu.
Mótettukórsfélagar munu láta ljós sitt skína í ýmsum hlutverkum á tónleikunum og verður orgelleikur á hið mikla Klais-orgel Hallgrímskirkju til að mynda í höndum Lenku Matéova, organista og kórfélaga. Málmblásarar eru úr röðum Sinfoníuhljómsveitar Íslands. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.
 
Á efnisskránni er hátíðleg aðventu- og jólatónlist þar sem ofnir eru saman þýskir barokksálmar eftir Praetorius, Gabrieli og Eccard í bland við lúðragjöll og mikilfenglegan orgelhljóm Klaisorgelsins. Auk þess verða fluttir sjaldheyrðir enskir jólasöngvar, nýjar íslenskar jólaperlur og fjöldinn allur af þekktum og hljómfögrum jólasálmum í hátíðlegum búningi.

Haldnir verða þrennir tónleikar í Hallgrímskirkju, laugardaginn 5. desember kl. 17, sunnudaginn 6. desember kl. 17 og þriðjudaginn 8.desember kl. 20.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


Re:Mutton Pies (lleechef)


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Pamatay na Banat and Mga Patama Love Quotes


Tagalog Long Distance Relationship Love Quotes


BARKADA TAGALOG QUOTES


“BAHAY KUBO HUGOT”


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.