Tónleikarnir eru hluti af tónleikaferðalagi hans um landið í október og mun hann leika efni úr ýmsum áttum enda úr nógu að taka. Högni hefur samið tónlist með hljómsveitum sínum Hjaltalín og GusGus auk sólóverkefnisins HE. Þá hefur hann samið fjöldamörg tónverk fyrir leikhús, sjónvarp og kvikmyndir. Öll verkefnin eru undir og mega tónleikagestir því búast við einstakri tónlistarveislu.
Vinsamlegast athugið
18 ára aldurstakmark er á viðburðinn.