Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Maya Dunietz - Mengi á Listahátíð III

Annað árið í röð munu Listahátíð í Reykjavík og menningarhúsið Mengi hafa samstarf um tónleika á Listahátíð. Mengi hefur undanfarið ár haldið uppi fjölbreyttri dagskrá og lífgað upp á menningarlíf Reykjavíkur með ýmsum viðburðum s.s. tónleikum, tónlistargjörninum og fleira og hefur bæði verið tilnefnt til Íslensku tónlistarverðlaunanna og Menningarverðlauna DV. Í ár verða fernir tónleikar haldnir í Mengi á Listahátíð. Fjóra laugardaga í röð stíga á stokk konur í tónlist, ýmist á hátindi ferilsins eða að stíga sín fyrstu skref innan tónlistarheimsins.

Laugardaginn 30. maí mun Maya Dunietz flytja verkið Boom fyrir píanó, rödd, vídeó og rafhljóðfæri. Tónskáldið, píanóleikarinn og hljóðinnsetningarlistamaðurinn Maya Dunietz er fædd árið 1981 í Ísrael. Hún hefur samið verk fyrir tónlistarhópa og kóra, komið fram sem píanóleikari og söngvari, flutt gjörninga og hljóðinnsetningar og smíðað rafhljóðfæri. Hún er stofnandi tilraunasönghópsins Givol og er í ísraelsku hljómsveitinni Habiluim.

Í nýju einleiksverki sínu, Boom, kannar Maya Dunietz rýmið með bylgjum sem fara um loftið. Með röddinni, píanóinu og einstakri vörpunartækni leikur hún sér að lagskiptingu hljóðs, myndefnis og vitundar. Verkið kannar spírala og lykkjur og fæst við efnisgervingu hljóðsins. Úr hugmyndinni um tónlist, sem hreyfingu lofts innan rýmis, skapar hún upplifun fyrir mörg skilningarvit. Fyrir þetta nýja verk hefur hún þróað einstaka tækni, m.a. lítinn þráðlausan hátalara sem hægt er að hafa í munninum, vörpun líkama á líkama, afturverkun hljóðs og margvítt lag af raf-akústísku hljóði.

Verkið var samið fyrir Palais de Tokyo árið 2014.



Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


EASY COME, EASY GO


HOY PANGIT, MAGBAYAD KA!


Girasoles para colorear


Presence Quotes – Positive Quotes


“Tado” Jimenez Quotes Collections Online


Papa Jack Tagalog Love Quotes and Advice for you


Top 10 Best Tagalog Friendship Quotes and Sayings | mrbolero


“Mali man na ikaw ay ibigin ko, akoy iibig padin sayo”


RE: Mutton Pies (frankie241)


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Pokemon para colorear


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Mga Patama sa mga Nagmamahal the Best Tagalog love quotes for you


5 Tagalog Relationship Rules


“BAHAY KUBO HUGOT”


Re:Mutton Pies (lleechef)


Ka longiing longsem kaba skhem bad kaba khlain ka pynlong kein ia ka...


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.