Hinn eini sanni Eddie Izzard er væntanlegur til landsins til að skemmta Íslendingum, Eldborg Hörpu…næsta laugardag! Fyrirvarinn er enginn og áhugasamir verða að bregaðst hratt við til að tryggja sér miða.
Izzard gerði það að listformi að rífa kjaft og hefur átt órúlegu fylgi að fagna um allan heim síðastliðin ár. Hann seldi upp Madison Square Garden í New York, flutti sýninguna “Stripped” samfleytt í þrjá mánuði í París og varð svo fyrsti grínisti veraldar til að koma fram með einstaklings uppistand á hinum goðsagnakennda stað, Hollywood Bowl í Los Angeles. Einstakur árangur hjá einstökum manni.
Force Majeur kemur til Íslands (skyndilega og fyrirvaralaust) eftir að hafa slegið í gegn í rúmlega 25 löndum; m.a. um alla Evrópu, Afríku, Rússlandi, Nýja Sjálandi, Indlandi, Nepal og Austurlöndum fjær.