Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Masterclass Kings Singers í Hörpu -

The King’s Singers í Hörpu

Hinn heimsfrægi breski sönghópur, The King's Singers, mun halda tónleika í Eldborgarsal Hörpu þann 16. september 2015 næstkomandi. King´s Singers eru margverðlaunaðir og hafa t.d. unnið til Grammy verðlauna í tvígang, árið 2009 fyrir plötuna ,,Simple Gifts" og árið 2012 fyrir plötuna „Light and Gold“. Árid 2013 var þeim bodid í Gramophone frægdarhöllina, Gramophone hall of fame, og heiðraðir fyrir sitt einstaka safn af útgefnum geislaplötum.

The King´s Singers var stofnaður árið 1968 og heldur vel yfir hundrað tónleika á ári, víðs vegar um heiminn. Upptökur á geisladiskum skipa stóran sess hjá hópnum. Efnisval King´s Singers er gríðarlega fjölbreytt og á 50 ára ferli hefur hann gefið út yfir 150 diska með yfir 2000 lögum.

Hópurinn hefur frumflutt yfir 200 verk,m.a. eftir tónskáldin György Ligeti, John Tavener, Eric Whitacre og marga fleiri.

Fjölmiðlar hafa ítrekað farið fögrum orðum um sönghópinn og The Times í London  kallar hann „Söngsextett í hæsta gæðaflokki“. Miðasala á tónleikana er hafin.

Sama dag og tónleikar hópsins verða í Eldborg halda meðlimir hans masterclass fyrir 6 hópa/kóra sem þeir hafa valið úr umsóknum. Hægt er að tryggja sér áheyrn á þessu námskeiði með að kaupa miða hér á kr 1500. Þeir munu kenna í Norðurljósum og Kaldalóni og enda námskeiðið með stuttum tónleikum þar sem þátttakendur munu koma fram.

Masterclass með The King’s Singers

Á námskeiðum The King’s Singers er lögð áhersla á að vinna með styrkleika hvers tónlistarhóps. Námskeiðin fara fram í afslöppuðu andrúmslofti og meðlimir The King Singer’s munu vinna með hvern hóp eftir þörfum hans og lögð er  megináhersla á að bæta heildarframmistöðu hópsins. 

Unnið verður með þætti á borð við hljómblöndum og jafnvægi, framkomu, víbrató, liti, kóraga- og þjálfun. Unnið verður með tvö verk sem hópurinn velur sjálfur. Gert er ráð fyrir að hóparnir séu mjög vel undirbúnir.

Við lok námskeiðsins munu hóparnir safnast aftur saman og flytja verkin sín. 

1. Tímalengd:

Lengd: 2,5 tími, frá klukkan 11:00 til 13:30.

2. Kynning:

The King’s Singers flytja verk við upphaf námskeiðsins, kynna sig og útskýra svo hvernig námskeiðinu er háttað.

3. Kennslan:

Kennslan fer fram í hópum og The King’s Singers munu vinna með hópunum og einbeita sér að raddtækni, stíl og tónlistarflutningi/framkomu. Námskeiðið mun eiga sér stað í tveimur sölum. Hver hópur vinnur með meðlimi the King’s Singers í 40 mín. 

4. Tónlistarflutningur og spurningatími:

Hver hópur kemur fram og flytur stutt verk fyrir áheyrendur í lok námskeiðsins í Norðurljósasalnum.

5. Verð:

Áheyrnargjald kr 1500 og hægt að tryggja sér miða hér.



Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Pamatay na Banat and Mga Patama Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


INUMAN QUOTES


Re:Mutton Pies (lleechef)


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE