Jazz píanóleikarinn Anna Gréta Sigurðardóttir leikur þekkta jazzstandarda í bland við eigin tónlist ásamt Þorgrími Jónssyni á kontrabassa og Einari Scheving trommuleikara. Sérstakur gestur í nokkrum lögum á tónleikunum verður Sigurður Flosason saxófónleikari, faðir Önnu.
Anna Gréta útskrifaðist frá Tónlistarskóla FÍH síðastliðið vor en stundar nú framhaldsnám við Konunglega Tónlistarháskólann í Stokkhólmi. Þess má geta að Anna Gréta var valin Bjartasta vonin í flokka Jazz- og blústónlistar á Íslensku tónlistarverðlaununum nú nýverið.
Almennt miðaverð er kr. 2.000 en kr 1.500 fyrir námsmenn og eldri borgara.