Þann 27. febrúar kom út ný plata frá færeyska söngfluglinum og skáldinu Eivöru. Bridges er níunda plata Eivarar og hefur að geyma níu splunkuný lög. Remember Me og Faithful Friend hafa nú þegar hlotið góðar viðtökur.
Í tilefni af útgáfu plötunnar ætlar hún að halda glæsilega útgáfutónleika í Gamla bíói laugardaginn 25. apríl.
Eivör mun flytja lögin af nýju plötunni auk þess sem áhorfendur munu fá að heyra helstu smelli frá glæsilegum ferli.
Ásamt Eivöru koma fram samstarfsmenn hennar, þeir Mikael Blak, Högni Lisberg ogTróndur Bogason auk strengjaleikara.
Vinsamlegast athugið
Póstlistaforsala Senu hefst miðvikudaginn 11. mars kl. 10, degi áður en almenn sala hefst. Þeir sem eru skráðir meðlimir á viðburðapóstlista Senu fá á sendan póst með tengli sem gerir þeim kleift að kaupa miða samstundis.