Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Náttey - Tónleikar

$
0
0

Kammerhópurinn Náttey munu leika sex verk eftir Báru Gísladóttur, þar af þrír frumflutningar. Náttey samanstendur af þeim Báru Gísladóttur á kontrabassa, Bjarna Frímanni Bjarnasyni á píanó og Björgu Brjánsdóttur og Steinunni Völu Pálsdóttur á flautur. Tvennir tónleikar eiga sér stað föstudaginn 27. febrúar, fyrri kl. 20.00 og seinni kl. 22.00. 

Dagskrá:

I nostri dei sono morti fyrir tvær raddir, tvær flautur, píanó, kontrabassa og rafhljóð (frumflutningur)
Dauði flugunnar fyrir einleiksflautu
Skökk stjarna fyrir flautu og píanó
Café Kafka fyrir einleikskontrabassa
Jódynur fyrir einleiksflautu (frumflutningur)
Beðið fyrir píanó, rafboga og rauðan borða (frumflutningur)
MiMaMü fyrir tvær flautur og kontrabassa (frumflutningur)

Bára Gísladóttir lauk bakkalárprófi í tónsmíðum úr Listaháskóla Íslands vorið 2013 undir leiðsögn Hróðmars I. Sigurbjörnssonar og nemur nú framhaldsnám við Conservatorio G. Verdi í Mílanó undir leiðsögn Gabriele Manca

Bjarni Frímann Bjarnason lauk prófi í lág¬fiðluleik frá Listaháskóla Íslands vorið 2009. Frá og með 2011 hefur hann stundað nám í hljómsveitarstjórn við Hanns Eisler í Berlín undir leiðsögn Fred Buttkewitz.

Björg Brjánsdóttir hóf einleiksnám á þverflautu við Norges Musikkhøgskole haustið 2013 og frá haustið 2014 hefur hún verið nemandi við Hochschule für Musik und Theater München

Steinunn Vala Pálsdóttir lauk bakkalárgráðu í þverflautuleik úr Listaháskóla Íslands vorið 2014 og stundar nú nám við Musikhögskolan í Malmö.



Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


Re:Mutton Pies (lleechef)


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


Pamatay na Banat and Mga Patama Love Quotes


Tagalog Long Distance Relationship Love Quotes


BARKADA TAGALOG QUOTES


“BAHAY KUBO HUGOT”


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.