Tónskáldið, gítarleikarinn og þjóðargersemin Gunnar Þórðarson varð sjötugur á 4. janúar síðastliðinn og af f því tilefni efnir hann til afmælistónleika í Eldborgarsal Hörpu þann 29. mars.
Þar verða hans þekktustu lög flutt af landsliði íslenskra hljóðfæraleikara og söngvara, auk þess sem sjálft afmælisbarnið stígur á svið.
Gunnar hóf ferilinn með Hljómum, eins og kunnt er og einn þeirra sem stofnuðu svo ofurgrúppuna Trúbrot. Hann hefur samið fjöldann allan af þekktustu lögum þjóðarinnar, en útgáfusaga Gunnars spannar tæplega sjö hundruð lög á tugum platna í gegnum tíðina, í flutningi fremstu söngvara landsins.
Það er því ljóst að af nógu verður af að taka á afmælistónleikunum í Hörpu í mars.
Miðasala hefst fimmtudaginn 29. janúar kl. 10. Póslistaforsala Senu fer fram daginn áður. Nánari upplýsingar um tónleikana og miðasölu eru væntanlegar innan skamms.