Prins Póló varð til í rökum kjallara á Seyðisfirði veturinn 2009. Sama ár kom út stuttskífan Einn heima og ári síðar breiðskífan Jukk. Prinsinn er Svavar Pétur Eysteinsson frá Breiðholti en hin konunglega hirð er Kristján Freyr Halldórsson, Berglind Häsler, Benedikt Hermann Hermannsson og Axel Árnason. Prinsinn gaf síðastliðið ár út sína þriðju plötu, Sorrí, auk þess að semja tónlist við kvikmyndina París norðursins. Sorrí var tilnefnd plata ársins 2014 af Dr. Gunna, Fréttablaðinu, og Fréttatímanum og Reykjavík Grapevine valdi sveitina hljómsveit ársins. Auk þess er Prins Póló tilnefndur til fernra íslenskra tónlistarverðlauna. Þegar hirðin kemur saman er oft kátt í höllinni.
↧