Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Eitthvað Fallegt - Jólatónleikar

Söngvaskáldin Ragnheiður Gröndal, Kristjana Stefáns og Svavar Knútur munu halda jólatónleika í nóvember og desember, undir yfirskriftinni Eitthvað fallegt. Tónleikarnir heita eftir samnefndri hljómplötu þeirra, sem kom út í fyrra hjá Dimmu útgáfu.

Á tónleikunum kennir ýmissra grasa úr jólagarðinum, bæði verða flutt sígild íslensk jólalög og nokkur frumsamin lög eftir listafólkið og er áherslan lögð á látleysi, einfaldleika og einlægni í flutningi. Allur hljóðfæraleikur er í höndum tríósins og er hljóðheimnum þannig haldið eins lágstemmdum og mögulegt er.

Ragnheiður, Kristjana og Svavar leggja uppúr því að stemmningin á tónleikunum verði líkust kvöldvöku eða góðri samverustund og verða m.a. lesnar jólasögur og fundið upp á ýmsum gleðileik milli jólalaganna. Þetta á því að vera hin fínasta stund fyrir alla fjölskylduna.

Miðaverð á tónleikana er kr. 3.500 en ókeypis er fyrir börn og unglinga. Þá er sérstakur afsláttur fyrir eldri borgara, öryrkja og atvinnulausa. Til að nýta afsláttinn þarf að kaupa miðana í Brim: Smellið hér fyrir nánari upplýsingar.

Hluti miðaverðs tónleikanna rennur til góðs málefnis í heimabyggð.

Kristjana, Ragga og Svavar Knútur



Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Confidence Quotes – Confident Quotes


Tagalog Love Quotes – Nagmamahal


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Tropa Quotes


INUMAN QUOTES


Re:Mutton Pies (lleechef)


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.


Sapos para colorear


Pokemon para colorear


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Problema Quotes – Pera Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Best Love Life Quotes Collection


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes