Það eru ekki margar hljómsveitir á Íslandi sem státa af eins hryllilegum laga og hljómsveitarnöfnum og TODMOBILE. Við meinum í alvöru: TODmóbíl. Á þýsku væri þetta "DAUÐABÍLLINN" Af ógnvekjandi lagatitlum má nefna Pöddulagið (HERMAUR), Hryllingslagið, Requem (Messa hinna dauðu), Eldlagið (Ég brenn innan í mér) Ég heyri raddir (að handan uhhh) Spiladós (stúlka föst í leikfangiað eilífu) Stopp( ég ræð ekki við líkama minn) Stúlkan(sem faðmaði flugvélar….hvernig fer það???)
Todmobile er sú hljómsveit sem oft er skrifuð fyrir vorinu í Íslensku hljómleikalífi. Fór strax á sínum fyrst árum með allt of mikið af græjum út um allt land og boðaði hryllingsáróður sinn. Sem greinilega virkaði því hér er Dauðabíllinn kominn enn á ný til Hafnarfjarðar. Með öll gömlu og góðu hryllingslögin og nýtt "BLÓÐ" með Eyþóri Inga, ásamt gömlu vampírunum Andreu Gylfa, Þorvaldi Bjarna, Eiði Arnars, Kjartani Valdemars og Óla Hólm.
Verið hrædd því þetta verður…..Gaman