Kristjana Stefánsdóttir söngkona og Kjartan Valdemarsson píanóleikari standa fyrir fernum spunatónleikum í Hannesarholti í vetur, og eru þessir tónleikar númer tvö í röðinni. Þau fá til sín góða gesti sem munu leika með þeim á tónleikunum. Meðal viðfangsefna verða íslensk sönglög, amerískir standardar, Bítlarnir og svo þekkt rokk- og popp lög.
Tónleikarnir verða á fimmtudögum kl.20.00 og verða opnar æfingar í Hljóðbergi auglýstar sérstaklega fyrir tónleika Hannesarholts fyrir þá sem vilja fylgjast með listamönnunum að störfum.
Gestur á þessum tónleikum er Jóel Pálsson.