Jólatónleikarnir Hátíð í bæ 2014 fara fram í Íþróttahúsinu Iðu á Selfossi, miðvikudaginn 3 desember n.k. og hefjast klukkan 20.00, tónleikunum lýkur klukkan 22.15.
Flytjendur í ár eru:
Þríeykið Egill, Þóra og Ásgeir
Guðmundur Eiríksson
Kór Fjölbrautaskóla suðurlands
Páll Rúnar Pálsson
Guðrún Gunnarsdóttir
Daníel Haukur Arnarson
Tríó Vignis Stefánssonar
Helga Möller og heiðursflytjandi í ár er Ragnar Bjarnason.
Árlegt leyniatriði verður samkvæmt venju. Kynnir í ár er útvarpsmaðurinn ljúfi Valdimar Bragason.
Verð miða á Hátíð í bæ er óbreytt á milli ára í A-hólf fremri hluta er kr. 4700 í B-hólf aftari hluta er 4200 og til hliðar í C hólf krónur 2500.
Njótum aðventunnar í heimabyggð, það verður Hátíð í bæ 3 desember n.k.