Halloween Partí Páls Óskars - Á Rúbín Öskjuhlíð
Jæja, elsku púkarnir mínir, álfar, tröll, prinsar og huldumeyjar. Nú ætlum við að skreyta Rúbín hátt og lágt og breyta honum í Drakúla kastala. Hrekkjavökuballið í fyrra á Rúbín var gjörsamlega glimrandi gordjöss, enda staðurinn tilvalinn í grímuböll og sérviðburði sem þessa. Staðurinn er hogginn inn í kletta sjálfrar Öskjuhlíðar svo næg er lofthæðin og plássið. Ég ætla að þeyta skífum og stjórna stuðinu frá kl. 23 til 4 um nóttina – pásulaust – og auðvitað syngur maður alla bestu partíslagarana þegar leikar standa sem hæst ásamt dönsurum, bombunum og blöðrunum í flottasta ljósa- og hljóðkerfi landsins.
ATH. Engin skylda er að mæta á ballið í grímubúningi. Auðvitað er það miklu skemmtilegra og í fyrra heyrði það til algerra undantekninga ef gestir voru ekki í einhverjum búningi eða hlutverki. Munið að góðar hugmyndir þurfa ekki að kosta mikið. Ég veit alveg nákvæmlega í hverju ég ætla að vera – og ég hlakka gríðarlega til að sjá í hverju ÞÚ ætlar að vera!
Miðasalan er nú í fullum gangi hér á miði.is, og einnig verður nóg af miðum til við innganginn. Sjáumst í hryllilega góðu stuði á flottasta Halloween balli ársins. Ykkar, Páll Óskar (DJ Drakúla)