Bylgjan í samvinnu við Prime og Eitt Lag Enn kynna
Þorláksmessutónleikar Bubba Morthens 2014
Tuttugasti og þriðji desember snýst um hefðir og það er fyrir margt löngu komin hefð fyrir Þorláksmessutónleikum Bubba Morthens í miðborg Reykjavíkur.
29 ár eru síðan tónleikarnir voru fyrst haldnir og aldrei hefur orðið messufall.
Nú verður hefðinni viðhaldið og tónleikarnir haldnir í Eldborg Hörpu að kvöldi Þorláksmessu kl.22:00
Bubbi hefur að undanförnu verið að grúska í lagasafni sínu og hann hefur fundið nokkur frábær lög sem lítið hafa heyrst og aðspurður segist hann ekki skilja í sér að hafa ekki spilað þau oftar frá því að þau komu út.
Bubbi segist ætla að æfa þessi gleymdu lög og flytja á tónleikunum auk allra þeirra laga sem þykja ómissandi á Þorláksmessu.
Athugið að aðeins verða einir tónleikar og því mikilvægt fyrir aðdáendur Bubba að hafa hraðar hendur og tryggja sér miða.
Bylgjan mun senda beint út frá tónleikunum auk þess að bregða á leik á næstu dögum og verðlauna heppna miðakaupendur. Allir sem kaupa miða fyrir 31. október eiga möguleika á að fá miðana endurgreidda og geta einnig unnið til fleiri vinninga í þessum skemmtilega leik á Bylgjunni.