Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

SN Stórtónleikar á skírdag. -

Það er stórkostlegt að verða vitni að augnsambandi hljómsveitar og hljómsveitarstjóra í flutningi á úrvalsverkum klassískrar tónlistar í upphafi páskahátíðar. Skírdagur er sá dagur þegar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands skartar sínu fegursta í félagsskap Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands og nemenda víða að úr ýmsum tónlistarskólum Íslands þ.á.m. Tónlistarskólanum á Akureyri. Það er með stolti sem SN og unga fólkið flytja sérstaklega metnaðarfulla efnisskrá sem fær hjörtun til að slá hraðar og þakið á Hamraborginni að lyftast.

Tchaikovsky samdi Marche Slave til stuðnings særðum Serbum sem þreyttu stríð við Tyrki 1876-1878. Verkið sækir töluvert í serbnesk og rússnesk þjóðlög og endurspeglar sterkar tilfinningar, þjáningu, sigurvissu og baráttuanda.

Stravinsky samdi Eldfuglinn fyrir rússneska ballettinn árið 1910. Verkið byggir á rússneskri þjóðsögu sem segir frá eldfuglinum sem er eiganda sínum bæði til bölvunar og gæfu. Það náði strax gríðarlegum vinsældum og markaði upphaf að frægðargöngu Stravinskys.

Konsert fyrir hljómsveit eftir Bartok er eitt hans þekktasta og vinsælasta verk. Þar mætast straumar vestrænnar klassískrar tónlistarhefðar og austurevrópskrar þjóðlagahefðar en Bartok samdi verkið þegar hann neyddist til að yfirgefa Ungverjaland og flytjast til Bandaríkjanna í kjölfar seinni heimstyrjaldarinnar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Top 10 Best Tagalog Friendship Quotes and Sayings | mrbolero


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Mga Patama sa mga Nagmamahal the Best Tagalog love quotes for you


Hugot Lines 2020 Patama : ML Edition


Re:Mutton Pies (lleechef)


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Pokemon para colorear


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Sapos para colorear


Maganda Quotes – tagalog Quotes – Inggit Quotes


“Tado” Jimenez Quotes Collections Online


EASY COME, EASY GO


5 Tagalog Relationship Rules


“BAHAY KUBO HUGOT”


RE: Mutton Pies (frankie241)


Patama tagalog quotes – Move On Quotes


Girasoles para colorear