Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Syngjum saman - Söngstund

$
0
0

Íslendingar hafa löngum ræktað sönghefðina á mannamótum og í rútubílum. Hannesarholt vill leggja sitt af mörkum til að hlúa að sönghefðinni og bjóða uppá samsöng fyrir alla, unga sem aldna, Íslendinga sem aðflutta, undir stjórn kunnáttufólks.  Gunnar Ben kórstjóri og meðlimur Skálmaldar leiðir söngstundina sunnudaginn 19. október kl.16. Eins og venja er til munu textar birtast á skjá. Aðgangseyrir er  kr.1000.

Veitingahúsið verður opið á fyrstu hæð hússins, og hægt verður að fá sér kaffi og meðlæti á undan eða eftir söngstundinni.



Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696