Líttu inn í hádeginu
Þriðja árið í röð býður Salurinn upp á hálftíma langa hádegistónleika sex sinnum yfir veturinn. Fjölbreytt og vönduð dagskrá undir listrænni stjórn Guðrúnar Birgisdóttur.
Hægt er að kaupa áskrift á þrenna tónleika á 3000,-.
Miði á staka tónleika 1200,-
15. október kl. 12:15
Að ferðast og koma heim
Píanóleikarinn Kristín Jónína Taylor flytur sónötur eftir Schubert og Prokofiev á þessum fyrstu hádegistónleikum vetrarins.
12. nóvember kl. 12:15
Árin í París
Hafdís Vigfúsdóttir, flautuleikari, Sigurjón Daðason, klarinettuleikari, og Kristján Karl Bragason, píanóleikari.
10. desember kl. 12:15
„Nú minnir svo ótal margt á jólin“
Jólastemning í hádeginu með Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, sópran og píanóleikaranum Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur.
14. janúar kl. 12:15
Milt í janúar
Kársnestríóið
Guðrún Birgisdóttir flautuleikari, Elísabet Waage hörpuleikari og Svava Bernharðsdóttir víóluleikari flytja hina óviðjfnanlegu sónötu Debussys ásamt fleiri perlum frá Frakklandi.
11. febrúar kl.12:15
Rómönsur og fleira góðgæti á Þorra
Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari og Selma Guðmundsdóttir píanóleikari flytja verk fyrir fiðlu og píanó eftir Pugnani, Beethoven, Árna Björnsson og Dvorak.
18. mars kl. 12:15
Tangó
Flautuleikarinn Guðrún Birgisdóttir og píanóleikarinn Snorri Birgisson flytja Histoire du Tango eftir Piazzolla auk fleiri tangóverka.