Litla Jazzhátíðin í Hafnarfirði. 21. og 22. ágúst í Bæjarbíó á vegum Jazzklúbbs Hafnafjarðar.
Fimmtudagurinn 21. ágúst
Það er Magnus Kvartett frá Færeyjum sem er sannkallað einvalalið gæða tónlistarmanna og hin íslenskiSkarkali sem munu spila á tónleikum í Bæjarbíó kl. 21.00. Hús opnar hálftíma fyrr. Miðaverð aðeins 2000 kr. og fylgir með geisladiskur með Magnusi Johannessen.
Tríóið Skarkali var stofnað sumarið 2013. Áður hafa liðsmenn spilað saman í mörgum hópum við hin ýmsu tilefni eftir að hafa kynnst í Tónlistarskóla FÍH. Þaðan hafa þeir allir útskrifast á síðustu árum. Skarkali flytur aðallega frumsamda jazztónlist eftir Inga Bjarna þar sem fjölbreytnin er höfð í fyrirrúmi. Fágaður bassaleikur Valdimars og kraftmikill trommuleikur Óskars setja tónlistina á hærra plan!
Í fyrra spilaði Skarkali a´ Jazzha´ti´ð Reykjavi´kur og to´k si´ðan þa´tt fyrir I´slands ho¨nd i´ Young Nordic Jazz Comets sem haldin var i´ Þra´ndheimi, Noregi. Í náinni framtíð hyggst tríóið gefa út geisladisk. Tónleikar á Íslandi og í Færeyjum sumarið 2014 eru liður í að kynna hljómsveitina.