Sveinn Dúa Hjörleifsson tenór heldur einsöngstónleika ásamt Hrönn Þráinsdóttur píanóleikara. Á efnisskránni verða Íslensk sönglög, þýsk og norræn ljóðalög ásamt óperuaríum.
Sveinn hefur verið fastráðinn við óperuhúsið í Linz, Austurríki síðastliðin tvö ár og fengið mikið lof fyrir frammistöðu sína í hinum ýmsu hlutverkum. Auk þess hefur hann undanfarið meðal annars komið fram á tónleikum í Konzerthaus Wien, Wiener Musikverein, Opera Bergen, Opera St.Moritz í Sviss og víðar. Heima hefur hann hefur reglulega komið fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands, íslensku óperunni og á ýmsum tónleikum.
Flytjendur:
Sveinn Dúa Hjörleifsson, tenór
Hrönn Þráinsdóttur, píanóleikari