Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

UB40 -

$
0
0

Í janúar 2014 tilkynntu meðlimir hljómsveitarinnar UB40 að þeir myndu koma saman á árinu til að taka upp nýja plötu og hefja tónleikaferð um heiminn með upprunalegri skipan hljómsveitarinnar.

Þessi tíðindi eru mikið fagnaðarefni fyrir aðdáendur hljómsveitarinnar sem var ein sú vinsælasta í heimi á níunda áratugnum og í upphafi þess tíunda.

UB40 er meðal allra söluhæstu listamanna popptónlistarsögunnar með yfir 70 milljónir seldra platna.

UB40 á einnig fjölda laga sem náð hafa á topp vinsældalista um allan heim,  þeirra þekktust eru sjálfsagt “Red Red Wine,” “I´ve got you babe”, “I cant help falling in love” og “Food for Thought”

Það má með fullri sanngirni segja að ef undan er skilinn Bob Marley og hljómsveit hans The Wailers er UB40 vinsælasta Reggae hljómsveit sögunnar.

UB40 var stofnuð árið 1979 og vakti strax athygli í heimalandinu Bretlandi. Hljómsveitin hefur starfað síðan með hléum og  með breytilegri meðlimaskipan. Allan þennan tíma hefur hljómsveitin gefið út plötur sem hafa hlotið einróma lof gagnrýnenda og aðdáenda. Síðasta plata sveitarinnar “Getting over the Storm” kom út 2013 og fékk hún 5 stjörnu dóma hjá bresku tónlistarpressunni.

UB40 mun heiðra Íslendinga með nærveru sinni í Eldborgarsal Hörpu þann 19. september.  Miðasala hefst 3. júlí á harpa.is og midi.is

Einungis er um eina tónleika að ræða



Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696