Quantcast
Channel: Miði.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Unnur Birna - Tónleikar

$
0
0

Tónleikar Unnar Birnu Bassadóttur á Græna Hattinum!

Það bíða margir spenntir eftir fyrstu sólóplötu Unnar Birnu Bassadóttur, en hún er væntanleg á komandi vetri. Á Græna hattinum mun Unnur flytja lög af þessari væntanlegu plötu, ásamt hljómsveit. Sum laganna verða frumflutt, en önnur hafa þegar heyrst í útvarpi, eins og lagið “Sober”, sem nú er á ferð um heiminn með Ian Andersson og Jethro Tull (sem upphitunarlag á skjá).

Unnur er fjölhæfur listamaður og hefur komið víða við, þrátt fyrir ungan aldur. Hún er fiðluleikari, söngkona og lagasmiður og er e.t.v. best þekkt sem fiðluleikari og söngkona Fjallabræðra. Hún hefur leikið með fjölda innlendra og erlendra tónlistarmanna og hefur einnig síðustu ár tekið þátt í ólíkum leiksýningum, s.s. Jeppa á fjalli og Spamalot.

Hljómsveitin er ekki af verri endanum, en það eru þeir Vignir Snær Vigfússon á gítar, Pálmi Sigurhjartarson á hljómborð, Róbert Þórhallsson á bassa, Ólafur Hólm Einarsson á trommur, Dagný Halla Björnsdóttir og Fabúla syngja raddir auk Marínu Óskar Þórólfsdóttur sem einnig spilar á flautu.

Áður en Unnur stígur á svið mun tónlistarkonurnar Dagný Halla, Marína Ósk og Fabúla leika eigin lög. Dagný Halla er að stíga sín fyrstu skref í bransanum, Marína Ósk er við nám í Hollandi, en Fabúla á að baki fjórar sólóplötur og hefur tvívegis verið tilnefnd til tónlistarverðlauna.

Vinsamlegast athugið

18 ára aldurstakmark er á viðburðinn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 2696

Trending Articles


Vimeo 10.7.1 by Vimeo.com, Inc.


Sapos para colorear


tagalog love Quotes – Tiwala Quotes


Break up Quotes Tagalog Love Quote – Broken Hearted Quotes Tagalog


Patama Quotes : Tagalog Inspirational Quotes


FORECLOSURE OF REAL ESTATE MORTGAGE


Tagalog Long Distance Relationship Love Quotes


BARKADA TAGALOG QUOTES


“BAHAY KUBO HUGOT”


Vimeo 10.7.0 by Vimeo.com, Inc.


Girasoles para colorear


mayabang Quotes, Torpe Quotes, tanga Quotes


Tagalog Quotes About Crush – Tagalog Love Quotes


OFW quotes : Pinoy Tagalog Quotes


Long Distance Relationship Tagalog Love Quotes


Tagalog Quotes To Move on and More Love Love Love Quotes


5 Tagalog Relationship Rules


Best Crush Tagalog Quotes And Sayings 2017


Re:Mutton Pies (lleechef)


Pamatay na Banat and Mga Patama Love Quotes