Tjarnarbíó kynnir magnaða tónleika laugardaginn 28. júní, þar sem einstaki, franski raftónlistarmaðurinn LAFIDKI kemur fram ásamt tveimur íslenskum hljómsveitum, Sad Owl Brothers og AMFJ.
LAFIDKI heitir í raun og veru Saphy Vong og er tónlistar- og sjónlistamaður frá Frakklandi, með rætur til Kambódíu. Hann leikur sér með abstrakt raftónlist, hávaða og samfellda lagskipta takta. Lifandi tónleikar eru alltaf tilraun fyrir honum þar sem hann kannar ósjálfráðar hugsanir og ákvarðanir í sambandi við orku fólksins og rýmisins.
Sad Owl Brothers er tríó sem samanstendur af Einari Indra, Hallvarði Ásgeirssyni og Friðþjófi Johnsson. Þeir spila raftónlist með gítarsveimi og munnhörpu. Tónlist þeirra mætti lýsa sem drill&bass country technoblús. Undanfarið hafa þeir verið iðnir við að spila víðsvegar um höfuðborgarsvæðið og suðurland en stefna á að spila á norðurlandinu í sumar og New York. Bandið er að vinna að sinni fyrstu plötu sem kemur út á næstu misserum.
AMFJ spilar næstum dansvæna noisetónlist þar sem hversdagsleg umhverfishljóð hafa verið teigð og skæld og blönduð inní hljóðgerfladrifinn og ágengan hljóðvegg. AMFJ tekst á ljóðrænan og fallegan hátt á við vandamál hins vinnandi manns í magnþrungnum samruna orða og tónlistar sem engan lætur ósnortinn. Ofsalegt sjónarspil, krefjandi upplifun.
Misstu ekki af rafmagnaðri kvöldstund í Tjarnarbíó, með einstökum frönskum tónlistarmanni í bland við íslenska snilld.
Nýopnaður bar Tjarnarbíós verður opinn og býður upp á fjölbreyttar veitingar.