ATP stendur fyrir sérstöku kvöldi í Stapa í Hljómahöll með listamönnum sem gefa út hjá ATP Recordings.
Þar munu hljómsveitirnar Fuck Buttons, Hebronix og Eaux koma fram ásamt DJ Barry Hogan (stjórnanda hátíðarinnar) en kvöldið er hluti af yfirtöku ATP á Íslandi dagana 7.-12. júlí.
Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 en húsið opnar kl. 20:00.
Miðaverð aðeins 2.500 kr.
Þeir gestir hátíðarinnar sem eru með helgarpassa á ATP Iceland (10.-12. júlí) eða vikupassa (ATP Iceland og Neil Young miða) fá frítt inn með því að sýna armbandið sitt eða miðann á hátíðina.
Vinsamlegast athugið
20 ára aldurstakmark er á viðburðinn.