Elsta jazzhátíð landsins blæs til árlegrar veislu. Hátíðin hefur verið haldin síðan 1988 og hafa margir frábærir listamenn komið fram á hátíðinni og engin breyting verður á í ár. Laugardaginn 28 júní verður JEA 2014 í Sláturhúsinu á Egilsstöðum.
Guðfaðir hátíðarinnar Árni Ísleifs setur hátíðina
Kaleo - KK Band - AT Nordic Quartett - Dútl - Georgy&co
Fjölbreytt og skemmtileg dagsskrá á skemmtilegum tónleikastað þar sem ýmisslegt fleira en frábærir tónleikar verða á boðstólnum.
Á jea.is getur þú lesið um listamennin of fleira.
Eftirtaldir aðilar styðja við JEA 2014:
Menningarráð Austurlands, Tónlistarsjóður, Fljótsdalshérað, Flugfélag Íslands, Landsnet, FIH, Landsbankinn og HEF