Íslands tenórarnir Kristján Jóhanns, Garðar Thór og Gissur Páll
Sannkölluð söng- og matarveisla í Hörpu í sumar
Kristján Jóhannsson, Garðar Thór Cortes og Gissur Páll Gissurarson slá upp tónlistar- og matarveislu í Björtuloftum, veislusölum Hörpu, í sumar. Þeir félagar hafa undirbúið tónlistardagskrá sem sett er saman sérstaklega fyrir Björtuloft. Á dagskránni eru klassískar söngperlur frá ýmsum tímum og óperu aríur við allra hæfi. Þessa herramenn þarf ekki að kynna fyrir nokkrum manni. Kristján sem kominn er heim eftir áralanga dvöl á ítalía hefur sungið í öllum bestu húsum heims eins og La Scala á Ítalíu. Garðar hefur átt farsælan feril og dugir þar að nefna tilnefningu hans til Bresku tónlistarverðlaunanna fyrir plötuna Cortes og Gissur Páll sem unnið hefur Íslensku tónlistarverðlaunin og sungið í flestum óperuhúsum Evrópu.
Einstök kvöldstund með perlum tónlistarsögunnar
“Dagskráin er sett saman með erlenda gesti í huga en auðvitað eru allir velkomnir. Söngdagskráin inniheldur mikið af okkar uppáhalds aríum, klassísk sönglög, smá Kaldalóns og jafnvel einhver söngleikjalög” segir Gissur Páll Gissurarson sem er einn Íslands tenóranna. “Það verður mikið gaman að syngja með Kristjáni og Garðari. Við höfum allir unnið saman en ekki svona mikið verkefni þannig að þetta er spennandi.”
Fimm réttir úr meistara eldhúsi
Fimm rétta kvöldmatur verður borinn fram á þessum kvöldum af landsliðskokkum veitingastaðarins Kolabrautarinnar í Hörpu en þeir sjá um veitingarnar. “Við verðum með það allra besta af því sem íslensk náttúru getur boðið bragðlaukunum uppá” Sagði Leifur Kolbeinsson eigandi Kolabrautarinnar. “Frábærir kokkar og frábært hráefni. Fiskur, lamb, skyr og grænmeti og svo setjum við töfrana í þetta. Þetta verður alvöru veisla”. Og það er í mörg horn að líta hjá tenórunum. “Það er í raun erfiðasti hlutinn í þessum undirbúningi er að koma að fíniseríngunni á matseðlinum. Það er náttúrulega mikil erfiðis vinna. Tala nú ekki um þegar það er ætlast til þess að maður sé að velja vín með þessu öllu” sagði Gissur hlæjandi.
Reykjavík, Faxaflóinn og miðnætursólin eru umgjörðin
Úr Björtuloftum er gríðarlega fallegt útsýni yfir alla Reykjavík, þaðan sjá gestirnir Hallgrímskirkju í austri og Snæfellsnesið í vestri og á meðan tónlistin lýður um salinn dansar sumarsólin á Faxaflóanum og tyllir sér yfir Snæfellsjökli. Kvöldið endar svo með því að gestir kvöldins fara út á svalir og skála þar sérstaka miðnætursólar skál og þar er lokalagið sungið.