
Sigga Beinteins, Guðrún Gunnars og Jógvan Hansen flytja skemmtilega söngdagskrá sem þau hafa unnið saman að undir heitinu "Við eigum samleið"
Hérna er á ferðinni einstaklega ljúfir og skemmtilegir tónleikar með gömlu góðu sönglögunum sem allir þekkja og elska. Sigga, Guðrún og Jógvan segja sögur milli laga eins og þeim einum er lagið.
Á dagskránni eru meðal annars lögin : Heyr mína bæn, Ég er komin heim, Til eru fræ, Kata rokkar, ég veit þú kemur, Dagný ásamt fleiri perlum úr íslenskri dægurlagasögu.
Þetta eru tónleikar sem enginn tónlistarunnandi ætti að láta fram hjá sér fara.