Clik here to view.

Á þessum seinni tónleikum Lindsay í Mengi Á mun hann spinna tónlist í félagi við íslenska spunatónlistarmenn. Hver útkoman verður er ómögulegt að segja til um en víst er að það verður áhugavert enda ekki á hverjum degi sem að listamaður sem haft jafn djúpstæð áhrif menningarlíf heillar kynslóðar kemur fram á Íslandi.
Bandaríkjamaðurinn Arto Lindsay er án efa á meðal áhrifamestu tónlistarmanna í seinni tíð. Nafn hans er órjúfanlegt þeim tilraunakenndu tónlistarstraumum sem létu á sér kræla í kjölfar pönksenunnar í New York og fékk á sig „no wave" stimpilinn, einkum vegna tregðu til að fylgja eftir öðrum ráðandi og fyrirframgefnum straumum og tónlistarstefnum. Þó ekki hafi „no wave“ stefnan verið langlíf hefur hún skilið eftir sig djúp spor í þróun ýmisa lista, svo sem kvimyndagerðar, tísku og sjónlist.
Áhrif brasilískrar tónlistar hafa alla tíð verið sterk í verkum Lindays en hann ólst þar upp að stóru leyti á blómaskeiði Tropicália listhreyfingarinnar á 7. áratug síðustu aldar. Auk þess að teljast til lykilmanna í listasenu New York-borgar síðustu áratugi ásamt listamönnum á borð við David Byrne, Laurie Anderson, Diego Costa, John Zorn, Jean-Michel Basquiat, Andy Warhol og Matthew Barney hefur hann unnið með og stjórnað upptökum á verkum margra helstu tónlistarmanna Brasilíu og má í því sambandi nefna Caetano Veloso, Tom Zé og Marisu Monte.
Lindsay hefur einnig getið sér gott orð á sviði hljóðlistar sem listrænn stjórnandi og sem innsetningalistamaður á listahátíðum og listhúsum víða um heim þar sem hann hefur m.a. unnið með listamanninum Ben Rubin.