
Dragðu andann í takt við vængjaslátt mölflugu sem berst fyrir lífinu við logann frá ljósaperunni, á meðan þú glímir við flækta sængina í óravíðum andvökudraumi.
Wide Slumber, nýtt tónleikhúsverk úr smiðju VaVaVoom og Bedroom Community, verður frumflutt á Listahátíð í Tjarnarbíói.
Verkið er innblásið af ljóðabókinni Wide Slumber For Lepidopterists eftir a. rawlings, þar sem mismunandi stigum svefns er líkt saman við lífshring fiðrilda og prósi hins vakandi manns umbreytist í ljóð þess sem sefur. Furðuheimur sífelldra hamskipta er skapaður á sviðinu með aðferðum myndræns leikhúss og brúðuleikhúss. Tónlist og söngur leiða áhorfandann um sögusvið þar sem mörk draums og veruleika eru óljós.
Söngvararnir þrír holdgera sögusvið og persónur innan Wide Slumber og birtast okkur sem svefnvísindamaður, fiðrildafræðingur og svefngengill. Með þeim á sviðinu er hljómsveit og vefarinn sem spinnur þráðinn.
Við höfum draumfarir, höfum við draumfarir?
Tónlist: Valgeir Sigurðsson
Texti: a. rawlings
Leikgerð: Sigríður Sunna Reynisdóttir og Sara Martí (VaVaVoom)
Leikstjórn: Sara Martí
Söngvarar: Alexi Murdoch, Sasha Siem, Ásgerður Júníusdóttir
Hljóðfæraleikarar: James McVinnie, Liam Byrne, Ólafur Björn Ólafsson
Leikmyndahönnun: Eva Signý Berger
Búningahönnun: Harpa Einarsdóttir
Leikmuna- og brúðuhönnun: Sigríður Sunna Reynisdóttir og Marie Keller
Ljósa- og vídjóhönnun: Ingi Bekk
Myndbandsverk: Pierre-Alain Giraud